1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar: Í stað orðsins „forsætisráðherra“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: mennta- og menningarmálaráðherra. Í stað orðsins „menntamálaráðherra“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: forsætisráðherra.
2. gr. Í stað orðsins „forsætisráðherra“ í 1. mgr. 5. gr. kemur: mennta- og menningarmálaráðherra. 3. gr. Reglugerð þessi öðlast gildi 1. október 2009. Forsætisráðuneytinu, 28. september 2009. Jóhanna Sigurðardóttir. Ragnhildur Arnljótsdóttir. |