Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 523/2010

Nr. 523/2010 9. júní 2010

GJALDSKRÁ
Hafnarsjóðs Strandabyggðar.

Almennt.

1. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Strandabyggðar er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. 1.

Um gjaldtöku tengda stærð skipa.

2. gr.

Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.

Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

Skipagjöld.

3. gr.

Lestargjöld:

Af öllum skipum skal greiða lestargjald, 9,30 kr. á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

Bryggjugjöld:

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi:

Skip við bryggju 3,00 kr. á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 12 tíma, sem skip liggur bundið, hámark 26 sinnum í mánuði.

Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, kr. 65 á mælieiningu, en þó aldrei lægra en kr. 6.455 á mánuði. Bátar minni en 20 brt. greiði þó aldrei lægra en kr. 4.505 á mánuði.

Frístundabátar minni en 20 brt. greiði kr. 2.176 á mánuði. Skip sem eru undanþegin lestargjaldi eru einnig undanþegin bryggjugjaldi.

Vörugjöld.

4. gr.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

5. gr.

Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:

a)

Umbúðir sem endursendar eru.

b)

Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.

c)

Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.

d)

Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.

6. gr.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

7. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

Vörugjaldskrá:

1. fl.:

Gjald kr. 180 fyrir hvert tonn:

 

Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.

2. fl.:

Gjald kr. 350 fyrir hvert tonn:

 

Lýsi og fiskimjöl.

3. fl.:

Gjald kr. 381 fyrir hvert tonn:

 

Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.

4. fl.:

Gjald kr. 497 fyrir hvert tonn:

 

Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings.

5. fl.:

Aflagjald reiknast 1,30% af heildarverðmæti.

 

Kaupanda afla ber að afhenda skrifstofu Strandabyggðar skýrslu um keyptan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi ber skil á greiðslu aflagjalds. Hámarksgjald samkvæmt lið þessum er kr. 3.752 fyrir hvert tonn. Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 180.

Af flutningi vinnutækja innanlands skal veita allt að 50% afslátt.

Sorphirða.

8. gr.

Bátar að 20 brt. kr. 1.130 á mánuði.

Bátar 21-30 brt. kr. 1.650 á mánuði.

Bátar yfir 30 brt. kr. 3.350 á mánuði.

Frístundaveiðibátar eru undanþegnir sorphirðugjaldi.

Festargjöld.

9. gr.

Festargjald fyrir hverja afgreiðslu er kr. 6.433.

Vatnssala.

10. gr.

Vatnsgjöld: Vatn afgreitt frá bryggju:

Vatn fyrir báta undir 15 brt. kr. 909 á mánuði.

Vatn fyrir báta 16-30 brt. kr. 1.814 á mánuði.

Kalt vatn afgreitt til skipa 31-60 brt. kr. 3.907 á mánuði.

Kalt vatn afgreitt til skipa yfir 60 brt. kr. 5.500 á mánuði.

Vatn afgreitt utan reglubundins vinnutíma kr. 3.554 fyrir útkall.

Vigtargjald.

11. gr.

Almenn vigtun kr. 96 á tonn.

Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun kr. 495.

Vigtun í yfirvinnu kr. 2.015 pr. klst.

Rafmagnssala.

12. gr.

Rafmagnssala kr. 9,80 á kwst.

Rafmagnstengigjald í yfirvinnu kr. 3.887.

Tengigjald fyrir afnot af föstum tenglum kr. 1.850.

Almennt gjald: Tengigjald pr. mánuð kr. 1.850.

125 AMP tenglar 2 tengigjöld pr. mán kr. 5.500

Rafmagnsgjöld breytast án fyrirvara samkvæmt breytingu á gjaldskrá Orkubús Vestfjarða hverju sinni.

Kranagjald.

13. gr.

Kranagjald, löndun með hafnarkrana kr. 260 á tonn.

Skráningargjald.

14. gr.

Skráning í Gaflinn á afla vegna fyrirtækja með endurvigtunarleyfi, kr. 0,20 á kg.

Um innheimtu og greiðslu gjalda.

15. gr.

Skrifstofa Strandabyggðar sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari. Heimilt er að leita samþykkis hafnarstjóra til notkunar greiðslumiðlunar við uppgjör skulda.

Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

16. gr.

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs Strandabyggðar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa starfsmanni hafnar upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda starfsmanni hafnarinnar þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef starfsmaður hafnarinnar krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá starfsmanni hafnarinnar að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

17. gr.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema um annað sé sérstaklega samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð. Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

18. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi. Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Starfsmanni hafnarinnar er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

19. gr.

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hafnarsjóði Strandabyggðar er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

Gildistaka.

20. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Strandabyggðar var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar á fundi sveitarstjórnar þann 23. mars 2010 og öðlast þegar gildi.

Hólmavík, 9. júní 2010.

Ásdís Leifsdóttir hafnarstjóri.


B-deild - Útgáfud.: 25. júní 2010

  Til baka