Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 621/2010

Nr. 621/2010 8. júlí 2010
SAMÞYKKT
um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar.

1. gr.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar er skipuð sjö bæjarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Bæjarstjórn fer með stjórn Mosfellsbæjar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins og vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum bæjarbúa.

5. gr.

Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að bærinn taki að sér verkefni sem varðar íbúa hans sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Meðal verkefna bæjarstjórnar Mosfellsbæjar er:

1.Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, sbr. IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga bæjarins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá bænum.
2.Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
3.Að stjórna fjármálum bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
4.Að ákveða stjórnkerfi bæjarins, ráða bæjarstjóra og framkvæmdastjóra sviða.

II. KAFLI

Um fundarsköp bæjarstjórnar.

7. gr.

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi annan hvern miðvikudag sem ekki ber upp á almennan frídag. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.30. Bæjarstjóri getur í samráði við forseta ákveðið að fella niður fundi í desember og janúar. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati forseta og bæjarstjóra og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

8. gr.

Sá kjörinn bæjarfulltrúi sem á að baki lengstu setu í bæjarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.

Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar átt jafnlengi setu í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.

9. gr.

Bæjarstjóri boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það.

10. gr.

Íbúum bæjarins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar bæjarins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.

Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórn ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum bæjarins með tryggum hætti, svo sem á vef sveitarfélagsins, í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.

11. gr.

Bæjarstjóri útbýr fundarboð bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal í fundarboði gera grein fyrir dagskrá fundarins. Heimilt er að boða bæjarstjórnarfundi með rafrænum hætti enda eigi kjörnir bæjarstjórnarmenn möguleika á því að nálgast fundarboðið. Þá skulu nauðsynleg fylgigögn einstakra mála á dagskrá einnig send með sama hætti.

Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

1.Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu forseta og varaforseta, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins, svo og ráðningar bæjarstjóra og framkvæmdastjóra sviða.
2.Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga, svo og fundargerðir byggðarsamlaga, samstarfsnefnda og ráða, eins og einstök erindi þeirra bera með sér.
3.Önnur málefni sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri ákveður að setja á dagskrá. Óski bæjarfulltrúi að fá erindi tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal hann tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal studd öllum nauðsynlegum gögnum sem tengjast þeim erindum sem eru á dagskránni, hvort heldur þau eru á dagskránni ein og sér eða inni í þeim fundargerðum sem á dagskrá eru.

12. gr.

Bæjarstjóri skal hafa sent bæjarfulltrúum fundarboð um bæjarstjórnarfund ásamt dagskrá hans og nauðsynlegum gögnum þannig að fundarboðið berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund.

13. gr.

Fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá skulu vera aðgengileg íbúum bæjarins þegar dagskrá hefur verið samin, svo sem á vef sveitarfélagsins, á auglýsingatöflu bæjarins, í afgreiðslu bæjarins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem bæjarstjórn ákveður.

14. gr.

Bæjarstjóri skal senda bæjarfulltrúum fundarboð auka bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá hans þannig að það berist þeim ásamt nauðsynlegum gögnum a.m.k. sólarhring fyrir fund.

15. gr.

Sá bæjarfulltrúi er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum uns forseti hefur verið kjörinn.

Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta bæjarfulltrúa skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meirihluta bæjarfulltrúa. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn forseti sem fleiri atkvæði fær þó að hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu.

Forseti stjórnar kjöri 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3. mgr. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti.

Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þegar að því loknu.

Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti störfum forseta nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils forseta.

16. gr.

Bæjarstjórn getur kosið tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og kosning forseta fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn.

17. gr.

Bæjarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.

Bæjarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks.

Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök erindi verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis erindisins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna bæjarins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík erindi verði haldinn fyrir luktum dyrum.

Tillaga um að erindi skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn.

Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.

18. gr.

Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarfulltrúa er mættur á fundinn og getur bæjarstjórn enga bindandi ályktun gert nema bæjarstjórnarfundur sé lögmætur.

19. gr.

Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu erinda og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar.

Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum.

20. gr.

Erindi skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað.

Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi erindi sem ekki hefur verið á boðaðri dagskrá ef 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa samþykkja slíkt afbrigði.

21. gr.

Bæjarstjórn afgreiðir erindi að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

1.Fjárhagsáætlanir bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
2.Ársreikninga bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
3.Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
4.Áætlanir fyrir bæinn sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
5.Tilkynningu til eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.

22. gr.

Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra og boða varamann í sinn stað, sem þá situr allan fundinn.

Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast.

Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn bæjarfulltrúi. Sé bæjarstjóri kjörinn bæjarfulltrúi telst hann ávallt sitja fundinn sem slíkur án þess að teljast vanrækja mætingarskyldu sína skv. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Óski bæjarstjóri sem jafnframt er kjörinn bæjarfulltrúi að sitja fund sem bæjarstjóri, er honum það heimilt og telst hann þá ekki vanrækja mætingarskyldu sína skv. 27. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, enda boði hann varamann í sinn stað.

Bæjarstjórn getur heimilað einstaklingi utan bæjarstjórnar að taka til máls á bæjarstjórnarfundi.

23. gr.

Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu erindis þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Bæjarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn bæjarins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið erindi sem lagt er fyrir bæjarstjórn eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórn fjallar um erindið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga bæjarins.

Bæjarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð erindis sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort erindi er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúa sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn erindis skal ekki taka með neinum hætti þátt í umfjöllun málsins og yfirgefa fundarsali bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

24. gr.

Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri.

Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr sæti sínu. Forseti getur þó ákveðið í upphafi fundar að talað skuli úr ræðustól.

25. gr.

Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta eða fundarins. Þegar til umræðu eru fundargerðir bæjarráðs, annarra nefnda, ráða eða stjórna skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða dagskrárlið fundargerðarinnar hann óskar að ræða.

Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu erindis. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) má þó tala a.m.k. þrisvar við hverja umræðu.

Ekki má bæjarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta.

26. gr.

Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.

27. gr.

Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um erindi verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur.

Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um erindi svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

28. gr.

Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það erindi sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu. Bæjarfulltrúi getur borið fram fyrirspurn til bæjarstjóra um hvert það dagskrármál sem til umræðu er á fundi og er bæjarstjóra skylt að veita svör við þeim af fremsta megni. Sé fyrirspurn borin fram skriflega er bæjarstjóri þó ekki skyldur að svara henni fyrr en á næsta reglulega fundi sé þess kostur og eru þá fyrirspurnin og svörin færð til bókar á þeim fundi.

29. gr.

Erindi er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það, synja því, fresta því, vísa því til umsagnar annarrar nefndar eða starfsmanns, vísa því til endanlegrar afgreiðslu nefndar eða starfsmanns, eða vísa því frá bæjarstjórn. Erindi sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra, né verður afgreiðslu erindis frestað sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

Erindi sem einungis er til upplýsingar eða kynningar og þarfnast ekki efnislegrar niðurstöðu eru lögð fram.

Fundargerðir eru ekki lagðar fram til afgreiðslu sem slíkar, heldur skal taka afstöðu til hvers og eins erindis sem þær hafa að geyma, sbr. ofanskráð, og niðurstaðan skráð við erindið sjálft.

30. gr.

Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja erindi að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.

Ef erindi er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji erindi samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

Forseti getur ákveðið að erindi verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með erindi eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Heimilt er að afgreiða erindi með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir.

Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.

31. gr.

Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör.

32. gr.

Bæjarstjórn getur ráðið fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók bæjarstjórnar eða falið starfsmanni ritun funda. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau dagskrármál sem tekin eru fyrir, heiti þeirra og skjalanúmer, og hvernig afgreiðslu þau hljóta sbr. 29. gr. Sé erindi ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Erindi sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál.

Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað.

Bæjarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar rafrænt. Verði það gert skal bóka í gerðabók bæjarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð rafrænt. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir bæjarfulltrúar, og eftir atvikum ritari, skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabókina. Í lok fundarins skal rafræn fundargerð prentuð út og hún undirrituð af viðstöddum bæjarfulltrúum, og eftir atvikum ritara. Einnig skal forseti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.

Bæjarfulltrúi sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.

Bæjarstjórn getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundi verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti, þeim útvarpað gegnum ljósvakamiðla og/eða netmiðla. Verði það ákveðið skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.

33. gr.

Bæjarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum bæjarins. Hver bæjarfulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar, svo sem störf forseta. Þó getur sá sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í bæjarráði eða annarri nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

34. gr.

Bæjarfulltrúa ber að gegna störfum sínum í bæjarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarins en í störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

35. gr.

Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.

Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök dagskrármál. Þegar um er að ræða erindi sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

36. gr.

Bæjarfulltrúi á aðgang að bókum og skjölum bæjarins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.

Óski bæjarfulltrúi upplýsinga sem fela það í sér að taka þurfi saman gögn skal hann snúa sér til bæjarstjóra með slíka ósk sem verða skal við beiðninni svo fljótt sem unnt er.

37. gr.

Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarfulltrúi lætur af þeim störfum.

38. gr.

Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra erinda sem til umræðu eru í bæjarstjórn.

39. gr.

Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags og getur bæjarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta og skal bæjarstjórn þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

40. gr.

Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn.

Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum bæjarins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

41. gr.

Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.

42. gr.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn sem taka sæti í bæjarstjórn.

IV. KAFLI

Nefndir, ráð og stjórnir.

43. gr.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Bæjarstjórn kýs jafnframt formann og varaformann bæjarráðs, svo og formenn og varaformenn nefnda bæjarins, sbr. 57. gr. samþykktar þessarar, nema lög mæli fyrir um annað.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá.

44. gr.

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa úr hópi aðalmanna í bæjarstjórn þrjá fulltrúa í bæjarráð til eins árs og formann og varaformann ráðsins. Aðal- og varafulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Hafi fulltrúi í bæjarráði verið kjörinn til setu í bæjarstjórn í óbundinni kosningu skal þó fara fram kjör á varamanni hans meðal aðal- og varamanna í bæjarstjórn.

Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.

Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn bæjarráðsmann að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Áheyrnarfulltrúinn skal eiga rétt til nefndarlauna til jafns við bæjarráðsmenn. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa.

Á sama hátt getur bæjarstjórn heimilað flokki eða framboðslista sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn nefndarmann í nefnd sbr. B. lið 57. gr. að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í viðkomandi nefnd með málfrelsi og tillögurétt, að því marki sem önnur lög eða fyrirmæli setja ekki skorður við því. Áheyrnarfulltrúi skv. þessu ákvæði á ekki rétt til nefndarlauna.

45. gr.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku á fimmtudögum. Nýtt bæjarráð sem kosið er árlega ákveður hvenær dags fundir skuli haldnir. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.

46. gr.

Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann skal hafa sent bæjarfulltrúum dagskrá bæjarráðsfundar í fundarboði ásamt nauðsynlegum gögnum þannig að fundarboðið berist þeim í síðasta lagi einum sólarhring fyrir bæjarráðsfund.

Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna bæjarstjóra um forföll og boða varamann í sinn stað.

47. gr.

Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs. Heimilt er að taka erindi til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks erindis ef einhver bæjarráðsmanna eða áheyrnarfulltrúi óskar þess.

Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs eða falið starfsmanni ritun funda. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 32. gr.

48. gr.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn bæjarins, fjármálastjórn og starfsmannastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin.

Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarins, þar undir m.a. atvinnumál, lóðaúthlutanir, ráðstöfun leigulóða bæjarins og stefnumótun allt að svo miklu leyti sem þessi mál eru ekki fengin öðrum að ákvörðun bæjarstjórnar. Bæjarráð er veitustjórn, hefur umsjón með undirbúningi og eftirliti framkvæmda, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum framkvæmdastjóra sviða og umsögnum hlutaðeigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.

Stjórnsýsla Mosfellsbæjar leggur bæjarráði og nefndum og ráðum bæjarins til starfsmenn sem starfa með nefndunum s.s. við undirbúning funda, ritun þeirra og frágang fundargerða.

Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra erinda sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla erinda sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda að svo miklu leyti sem ráðstöfun þess er ekki ákveðin af bæjarstjórn.

Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.

49. gr.

Skylt er starfsmönnum bæjarins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað.

50. gr.

Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.

51. gr.

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal hann sjá til þess að varamaður hans taki sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr bænum, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

52. gr.

Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin málefni.

53. gr.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins eftir því sem við á.

54. gr.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins og aðkomu starfsmanna að starfi þeirra, fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum um nefndir sem bæjarstjórn setur þeim.

Bæjarstjórn getur falið nefnd, ráði, stjórn eða einstökum starfsmönnum fullnaðarafgreiðslu einstakra erinda eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur bæjarstjórn ákveðið með viðauka við samþykkt þessa að fela nefnd, ráði eða stjórn á vegum Mosfellsbæjar fullnaðarafgreiðslu erinda sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs nema lög eða eðli máls mæli sérstaklega gegn því.

Á sama hátt og með sömu skilyrðum og getur í 2. mgr. er bæjarstjórn heimilt að fela öðrum aðilum innan stjórnsýslu Mosfellsbæjar fullnaðarafgreiðslu erinda.

Bæjarstjórn, bæjarráð eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu erinda samkvæmt þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.

Sá aðili sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu skv. 2. og 3. mgr., eða þriðjungur fulltrúa ef um nefnd, ráð eða stjórn er að ræða, sbr. 2. mgr., getur ávallt óskað eftir því að bæjarstjórn, bæjarráð eða viðkomandi nefnd samkvæmt samþykkt þessari taki ákvörðun um erindi.

Þegar bæjarstjórn neytir heimildar skv. 1. eða 2. mgr. skal jafnframt kveðið á um það hvernig fara skuli með endurupptöku erinda sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum. (Sjá viðauka I og II um embættisafgreiðslur).

55. gr.

  Nefndir, ráð og stjórnir bæjarins skulu halda gerðabækur. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 32. gr.

56. gr.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna bæjarins skulu teknar á dagskrá bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi.

Bæjarstjórn, skal í samræmi við ákvæði 29. gr., taka afstöðu til einstakra erinda í þeim fundargerðum sem hún tekur á dagskrá.

Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir eða hún útheimtir verulega vinnu fyrir starfsmenn bæjarins sem ekki er gert ráð fyrir í starfsáætlun ársins skal ályktunin ætíð lögð fyrir bæjarráð áður en hún er lögð fyrir bæjarstjórn.

57. gr.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti:

A) Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert:

 Bæjarráð. Þrír aðalmenn úr hópi aðalmanna í bæjarstjórn skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og formann og varaformann ráðsins. Aðal- og varafulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður verða sjálfkrafa varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Hafi kjörinn bæjarráðsmaður verið kjörinn bæjarfulltrúi í óbundinni kosningu skal varamaður hans kosinn úr hópi aðal- og varamanna í bæjarstjórn. sbr. 44. gr. samþykktar þessarar.

B) Til fjögurra ára. Eftirtaldar fastanefndir á vegum Mosfellsbæjar:

 Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

1.Fjölskyldunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með félagsmál og húsnæðismál eftir því sem kveðið er á um í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um húsnæðismál nr. 44/1998 og í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Nefndin fer með verkefni barnaverndarnefndar samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002. Jafnframt fer nefndin með jafnréttismál eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
2.Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Fræðslunefnd fer með fræðslumál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Nefndin fer með verkefni skólanefndar samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 91/2008 og verkefni leikskólanefndar samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008. Nefndin fer ennfremur með málefni Listaskóla Mosfellsbæjar, þar undir tónlistardeildar skólans samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985.
3.Íþrótta- og tómstundanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með íþrótta- og tómstundamál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina.
4.Menningarmálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Menningarmálanefnd fer með menningarmál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Nefndin fer með málefni Bókasafns Mosfellsbæjar, sbr. lög um almenningsbókasöfn nr. 36/1997. Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um verndun gamalla húsa og fornra minja samkvæmt þjóðminjalögum nr. 107/2001. Nefndin fer með vinabæjarsamskipti, málefni félagsheimilisins Hlégarðs, hefur umsjón með listaverkaeign bæjarins og fer með málefni Lista- og menningarsjóðs bæjarins.
5.Skipulags- og byggingarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með skipulags- og byggingarmál samkvæmt ákvæðum skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og önnur verkefni eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Nefndin
6.Skoðunarmenn bæjarsjóðsreikninga. Bæjarstjórn kýs tvo skoðunarmenn og jafnmarga til vara samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998.
7.Umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með umhverfismál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Hún fer með verkefni náttúruverndarnefndar samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 44/1999 og verkefni gróðurverndarnefndar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 17/1965. Nefndin hefur eftirlit með fjallskila- og afréttarmálum.
8.Ungmennaráð. Níu aðalmenn og jafnmargir til vara tilnefndir af eldri deildum grunnskólanna og Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Ungmennaráð kýs sér sjálft formann og varaformann þess. Ungmennaráð fer með málefni ungmenna eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar fyrir ungmennaráð.
9.Þróunar- og ferðamálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með þróunar- og ferðamál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina.
10.Yfirkjörstjórn og kjörstjórnir. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í yfirkjörstjórn við forseta- og alþingiskosningar, sbr. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, og á sama hátt þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í kjörstjórnir fyrir hverja kjördeild. Yfirkjörstjórn kýs sér sjálf formann og varaformann. Undirkjörstjórnir kjósa sér sjálfar formann og varaformann. Yfirkjörstjórn og undirkjörstjórnir fara jafnframt með verkefni kjörstjórna samkvæmt ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórnar, sbr. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.

C) Til fjögurra ára. Eftirtaldar samstarfsnefndir og ráð:

 Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:


1.Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara í sameiginlega almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins, þ.e. Hafnafjarðarkaupstaðar, Sveitarfélagsins Álftaness, Garðabæjar, Kópavogsbæjar, Seltjarnarneskaupstaðar, Reykjavíkurborgar, Mosfellsbæjar og Kjósarhrepps samkvæmt samkomulagi sveitarfélaganna þar um og  staðfestingu dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins.
2.Búfjáreftirlitsnefnd. Einn aðalmaður til setu í sameiginlegri búfjáreftirlitsnefnd Reykjavíkurborgar, Seltjarnarneskaupstaðar, Mosfellsbæjar og Kjósarhrepps og annan til vara skv. 10. gr. laga um búfjárhald o.fl. nr. 103/2002.
3.Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
4.Fulltrúaráð Eirar. Þrír aðalmenn og þrír varamenn.
5.Fulltrúaráð SSH. Tveir aðalmenn.
6.Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis. Tveir aðalmenn og tvo til vara í heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
7.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjórir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. lögum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
8.Launamálaráðstefna launanefndar sveitarfélaga. Allt að þrír fulltrúar og þrír til vara.
9.Samráðsnefnd Mosfellsbæjar og STAMOS. Tvo aðalmenn.
10.Samstarfsnefnd um málefni lögreglunnar. Einn aðalmaður í samstarfsnefndina skv. 12. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
11.Skólanefnd Borgarholtsskóla. Einn aðalmaður og einn varamaður.
12.Skólanefnd Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Tveir aðalmenn og tveir varamenn.
13.Stjórn skíðasvæðis höfuðborgarsvæðisins og Bláfjallafólkvangs bs. Einn aðalmaður og einn varamaður.
14.Stjórn Sorpu bs. Einn aðalmaður og einn varamaður.
15.Stjórn Strætó bs. Einn aðalmaður og einn varamaður.
16.Stjórn SHS bs. Einn varamaður. Bæjarstjóri alltaf aðalmaður.
17.Stjórn SSH. Einn varamaður. Bæjarstjóri alltaf aðalmaður.
18.Svæðisskipulagsráð SSH. Tveir aðalmenn.
19.Þjónustuhópur aldraðra. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 og samkomulagi við sveitarfélög sem aðild eiga að sama heilsugæsluumdæmi.

58. gr.

Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Bæjarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.

V. KAFLI

Um framkvæmdastjórn og starfslið bæjarins.

59. gr.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra og gerir við hann skriflegan ráðningarsamning þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör.

Ráðningarsamningur bæjarstjóra skal lagður fram í bæjarstjórn sem staðfestir hann.

60. gr.

Bæjarstjóri undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda í samræmi við 9., 11. og 46. gr. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarráð og bæjarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda bæjarins með sömu réttindum.

Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og málefna bæjarins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki ákveðið annað.

Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup, sölu og ráðstöfun fasteigna bæjarins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarstjórnar að veita öðrum starfsmanni bæjarins prókúru.

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarins.

Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs gegnir störfum bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn feli það öðrum.

61. gr.

Bæjarstjórn ræður framkvæmdastjóra sviða og veitir þeim lausn frá störfum. Bæjarstjórn setur á grundvelli þessarar greinar reglur um ráðningar annarra helstu starfsmanna, lausn frá störfum, launuð og launalaus leyfi, ráðningamál á vegum forstöðumanna, meðferð gagna, hlutverk launadeildar o.fl.

62. gr.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga.

VI. KAFLI

Um fjármálastjórn bæjarins.

63. gr.

Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal bæjarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, fyrirtækja og stofnana bæjarins fyrir yfirstandandi ár að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til ráðuneytis sveitarstjórnarmála og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.

Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

Bæjarstjórn skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld bæjarins fari ekki fram úr heildartekjum hans.

64. gr.

Fjárhagsáætlun skv. 64. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórn.

Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.

65. gr.

Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er bæjarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu á bæjarstjórnarfundi enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í bæjarstjórn með dagskrá viðkomandi bæjarstjórnarfundar.

66. gr.

Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal bæjarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir bæjarins. Skal hún unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

67. gr.

Strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála fjárhagsáætlun skv. 64. gr. og þriggja ára áætlun skv. 67. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 66. gr.

68. gr.

Ársreikningur bæjarins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar.

Bæjarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna.

Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana bæjarins og fyrirtækja hans eigi síðar en 1. júní ár hvert. Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikninginn.

Eintak af ársreikningnum skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna.

VII. KAFLI

Gildistökuákvæði.

69. gr.

Til þess að gera breytingu á samþykkt þessari þarf umræður á tveimur fundum í bæjarstjórn, samþykki meirihluta atkvæða og staðfestingu ráðuneytis sveitar­stjórnar­mála.

70. gr.

Við samþykktina bætast viðaukar, er verða viðauki I um embættisafgreiðslur byggingarfulltrúa og viðauki II um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa.

Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur sett skv. 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 125/2004.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. júlí 2010.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 23. júlí 2010