Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 152/2008

Nr. 152/2008 12. febrúar 2008
REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 871/2004, um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innanlands.

1. gr.

Á eftir orðinu „tannlækningar“ í 2. málsl. 1. gr. bætast orðin „og kostnaður vegna ferða til talmeinafræðings, samkvæmt reglugerð nr. 1166/2007, um styrki Tryggingastofnunar ríkisins vegna þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga sem eru án samnings við heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra“.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í i-lið 1. mgr., sbr. 3. mgr., 41. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 12. febrúar 2008.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Berglind Ásgeirsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 14. febrúar 2008