Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
23/2012
|
FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: 1. gr.
1. mgr. 5. gr. laganna orðast svo: Aðilar sem hafa leyfi til að stunda starfsemi skv. 2. og 3. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, Íbúðalánasjóður, lífeyrissjóðir og vátryggingafélög skulu standa straum af kostnaði við rekstur umboðsmanns skuldara með greiðslu sérstaks gjalds í samræmi við ákvæði laga þessara. Hið sama á við um fjármálafyrirtæki sem er stýrt af skilanefnd, slitastjórn eða bráðabirgðastjórn samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, óháð því hvort viðkomandi fyrirtæki hefur starfsleyfi, takmarkað starfsleyfi eða starfsleyfi þess verið afturkallað, enda stundi það eða hafi stundað starfsemi skv. 2. og 3. tölul. 1. mgr. 3. gr. þeirra laga.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 22. mars 2012. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Guðbjartur Hannesson.
|
A-deild - Útgáfud.:
26. mars 2012
|