Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1100/2013

Nr. 1100/2013 4. nóvember 2013
REGLUGERÐ
um þvingunaraðgerðir varðandi Afganistan.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja:

a)

ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,

b)

ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða

c)

ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að fram­fylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr. og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna er að ræða, einnig þær ákvarðanir framkvæmdanefnda þess eða gerðir Evrópusambandsins sem um ræðir, ennfremur þær þvingunaraðgerðir sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða eiga við um framkvæmd reglugerðar þessarar, eftir því sem við á.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr. Gerðirnar, ásamt viðaukum, eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa:

1) ákvörðun ráðsins 2011/486/SSUÖ frá 1. ágúst 2011 um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, eins og henni hefur verið breytt með:

  1. framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/167/SSUÖ,
  2. framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/334/SSUÖ,
  3. framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/393/SSUÖ,
  4. framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/454/SSUÖ,
  5. framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/745/SSUÖ,
  6. framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/809/SSUÖ,
  7. framkvæmdarákvörðun ráðsins 2013/73/SSUÖ,
  8. framkvæmdarákvörðun ráðsins 2013/145/SSUÖ,
  9. framkvæmdarákvörðun ráðsins 2013/219/SSUÖ, sbr. fylgiskjal 1;

2) reglugerð ráðsins (ESB) nr. 753/2011 frá 1. ágúst 2011 um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, eins og henni hefur verið breytt með:

  1. framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 263/2012,
  2. framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 543/2012,
  3. framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 643/2012,
  4. framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 705/2012,
  5. framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 1139/2012,
  6. framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 1244/2012,
  7. framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 86/2013,
  8. framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 261/2013,
  9. framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 451/2013, sbr. fylgiskjal 2.

Viðauki við ákvörðun ráðsins 2011/486/SSUÖ, eins og honum var breytt, er ekki birtur hér en þess í stað vísast í I. viðauka við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 753/2011, eins og honum var breytt, sbr. fylgiskjal 2. II. viðauki við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 753/2011 er ekki birtur hér þar sem hann á ekki við, sbr. f-lið 3. gr.

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í a-lið 2. gr. reglu­gerðar ráðsins (ESB) nr. 753/2011er birtur sem viðauki (Annex) við fylgiskjal 2 við reglu­gerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 800/2011.

Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

 

a)

ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofn­anir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins („EB“, „ESB“, „bandalagsins“ eða „sameiginlega markaðarins“) eiga við um íslenska ríkis­borgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfir­ráða­svæði eða Ísland, eftir því sem við á,

 

b)

ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,

 

c)

tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,

 

d)

tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,

 

e)

tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,

 

f)

vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/ thvingunaradgerdir.

4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir þá aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem til­kynning til þeirra um að þvingunaraðgerðirnar sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkis­ráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samn­ingar eða fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viður­lög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi A- og B-liðir I. viðauka reglugerðar um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi hryðjuverkasamtök (Al-Qaida og talíbana) nr. 154/2009, sbr. reglugerð nr. 544/2011.

Utanríkisráðuneytinu, 4. nóvember 2013.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Einar Gunnarsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 11. desember 2013