1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 171/2015, frá 11. júní 2015, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/28 frá 17. desember 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS-staðla 2, 3 og 8, og alþjóðlega reikningsskilastaðla, IAS-staðla 16, 24 og 38.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2015/28 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 63/2015, 15. október 2015, bls. 787.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. október 2015.
F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Valgerður Rún Benediktsdóttir.
Harpa Theodórsdóttir.
|