Skipulagsstofnun staðfesti 5. júní 2018 svæðisskipulag Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar 2018-2030 sem samþykkt var í svæðisskipulagsnefnd þann 26. mars 2018. Niðurstaða svæðisskipulagsnefndar var auglýst 24. apríl 2018 í Fréttablaðinu, á vefnum samtakamattur.is og á vef hlutaðeigandi sveitarfélaga. Málsmeðferð var samkvæmt 23.-25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 5. júní 2018.
F.h. forstjóra,
Hafdís Hafliðadóttir.
Ottó Björgvin Óskarsson.
|