1. gr.
Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:
Sveitarfélagið Skagafjörður.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Hofsóss og Sauðárkróks með eftirfarandi viðauka/breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: |
|
|
Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2015 til 31. ágúst 2016. |
Langanesbyggð.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Bakkafjarðar og Þórshafnar með eftirfarandi viðauka/breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: |
|
|
Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2015 til 31. ágúst 2016. |
2. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. desember 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Baldur P. Erlingsson.
Hinrik Greipsson.
|