1. gr.
Innleiðing.
Við 11. gr. reglugerðar nr. 180/2014 bætist eftirfarandi stafliður:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/445 frá 17. mars 2015 sem breytir reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð vegna flugverja í almenningsflugi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163 frá 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 15. október 2015, bls. 766.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr., 2. mgr. 32. gr. og 73. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 16. október 2015.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
|