1. gr.
5. mgr. 61. gr. fellur brott.
2. gr.
Á eftir 14. mgr. 86. gr. bætast við tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Diplómanám í handleiðslu er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu starfsréttindanámi í félagsráðgjöf eða öðru sambærilegu námi til lögverndaðra starfsréttinda. Auk þess er krafist minnst fjögurra ára starfsreynslu á sviði félags-, heilbrigðis-, skóla- eða réttarkerfis. Nám þetta er hægt að fá metið inn í rannsóknartengt MA-nám í félagsráðgjöf, að uppfylltum inntökuskilyrðum.
Diplómanám í fjölmenningarfélagsráðgjöf er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu starfsréttindanámi í félagsráðgjöf. Nám þetta er hægt að fá metið inn í rannsóknartengt MA-nám í félagsráðgjöf, að uppfylltum inntökuskilyrðum.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 14. október 2016.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
|