Samkvæmt III. kafla laga nr. 119/2012, um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, hefur ráðuneytið staðfest meðfylgjandi gjaldskrá Samgöngustofu er tekur gildi við birtingu. Með samþykkt meðfylgjandi gjaldskrár fellur úr gildi gjaldskrá Umferðarstofu nr. 1292/2011, sbr. breytingu nr. 598/2013, gjaldskrá fyrir þjónustu Umferðarstofu nr. 1291/2011, sbr. breytingu nr. 598/2013, gjaldskrá fyrir þjónustu Flugmálastjórnar nr. 200/2012, sbr. breytingu nr. 598/2013, gjaldskrá Siglingastofnunar nr. 1145/2012, sbr. breytingu nr. 598/2013 og 817/2013. Innanríkisráðuneytinu, 24. mars 2015. Ólöf Nordal. Ragnhildur Hjaltadóttir. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |