1. gr.
Gildistaka tiltekinna gerða Evrópusambandsins.
4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir sem vísað er til í XI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XI. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 531/2012 um reiki á almennum farsímanetum innan Bandalagsins frá 13. júní 2012, um reiki á almennum farsímanetum innan Bandalagsins, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, dags. 29. nóvember 2012, á bls. 487, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 173/2012 frá 28. september 2012.
- 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2120, frá 25. nóvember 2015, að því er varðar breytingu á reglugerð (ESB) nr. 531/2012 um reiki á almennum farsímanetum innan Sambandsins, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27, dags. 12. maí 2016, á bls. 1459, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 92/2016 frá 29. apríl 2016.
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/920 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 531/2012 að því er varðar heildsölumarkaði fyrir reiki frá 17. maí 2017, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2017 frá 13. júní 2017, birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa (fylgiskjal 1).
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2286 frá 15. desember 2016 um ítarlegar reglur um beitingu viðmiðunarreglna um eðlilega notkun og um aðferðafræði til að meta sjálfbærni afnáms aukagjalds á reiki í smásölu og um umsóknina sem veitandi reikiþjónustu þarf að leggja fram vegna þess mats, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2017 frá 13. júní 2017, birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa (fylgiskjal 2).
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2292 um vegið meðaltal hæsta verðs fyrir lúkningu símtala í farsíma í Sambandinu og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/2352, frá 16. desember 2016, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2017 frá 13. júní 2017, birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa (fylgiskjal 3).
2. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 35. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti með síðari breytingum og tekur gildi 15. júní 2017. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 558/2016 um breytingu á reglugerð nr. 1174/2012 um alþjóðlegt reiki á almennum farsímanetum innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. júní 2017.
Jón Gunnarsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|