1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi málsgrein:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 970/2014 frá 12. september 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 677/2011 um ítarlegar reglur um framkvæmd í tengslum við starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 113 frá 30. apríl 2015, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 18. júní 2015.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu.
Innanríkisráðuneytinu, 16. september 2015.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
|