Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 847/2015

Nr. 847/2015 17. september 2015

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 318/2013 um endurgreiðslu á umtalsverðum kostnaði við læknishjálp, lyf og þjálfun.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Endurgreiðslur taka til eftirfarandi læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaðar sem stofnast hefur hér­lendis:

  1. Hluta sjúkratryggðs í kostnaði við læknishjálp, rannsóknir, geisla- og myndgreiningar og beinþéttnimælingar, á opinberum sjúkrastofnunum og hjá læknum sem starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, sbr. 4.-6. gr., 1., 2. og 4. mgr. 9. gr., 12. gr., 13. gr. og 15. gr. reglugerðar nr. 1182/2013, um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heil­brigðis­þjónustu, með síðari breytingu.
  2. Hluta sjúkratryggðs í kostnaði við nauðsynleg lyf sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða og afgreidd eru gegn lyfseðli samkvæmt reglugerð nr. 313/2013, um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum, með síðari breytingum.
  3. Lyf vegna barna til 18 ára aldurs, sem afgreidd eru gegn lyfseðli.
  4. Hluta sjúkratryggðs í sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun á opinberum sjúkrastofnunum og hjá sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum og talmeinafræðingum sem starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, samkvæmt reglugerð nr. 166/2014, um þjálfun sem sjúkra­tryggingar taka til og hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við þjálfun, með síðari breytingum.

Áður en endurgreiðslur eru ákvarðaðar skal draga frá heildarkostnaði uppbætur sem elli- eða örorkulífeyrisþegi nýtur vegna læknishjálpar eða lyfja samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

a. 3. mgr. verður svohljóðandi:

Viðmiðunartekjur vegna endurgreiðslu eru eftirfarandi:

Viðmiðunartekjur    
einhleypings næsta Kostnaður Endurgreiðsla útgjalda
almanaksár á undan 3 mánuðir umfram kostnað
2.100.000 kr. og lægri 0,7% af tekjum 90%
2.100.000-2.800.000 kr. 0,7% af tekjum 75%
2.800.000-4.000.000 kr. 0,7% af tekjum 60%

Viðmiðunartekjur
   
fjölskyldu næsta Kostnaður Endurgreiðsla útgjalda
almanaksár á undan 3 mánuðir umfram kostnað
3.150.000 kr. og lægri 0,7% af tekjum 90%
3.150.000-4.500.000 kr. 0,7% af tekjum 75%
4.500.000-6.400.000 kr. 0,7% af tekjum 60%

b. Í stað „3.890.000 kr.“ og „6.340.000 kr.“ í 4. mgr. kemur: 4.000.000 og 6.400.000 kr.

c. Í stað „435.000 kr.“ í 5. mgr. kemur: 465.000 kr.

3. gr.

Í stað „4. maí 2013“ í 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. október 2015.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 11. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. október 2015.

Velferðarráðuneytinu, 17. september 2015.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 25. september 2015