1. gr.
4. gr. reglugerðarinnar breytist og orðast svo:
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi gerðir með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1207/2011 frá 22. nóvember 2011 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236 frá 13. desember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4 frá 23. janúar 2014, bls. 503.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1028/2014 frá 26. september 2014 um breytingu á framkvæmdarreglugerð Evrópusambandsins (ESB) nr. 1207/2011 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar fyrir samevrópska loftrýmið, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 112 frá 30. apríl 2015, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, 18. júní 2015, bls. 192.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu.
Innanríkisráðuneytinu, 16. september 2015.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
|