1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum á nautakjöti samkvæmt viðauka IV A og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
|
Vara |
Tímabil |
Verðtollur |
Magntollur |
|
|
|
% |
kr./kg |
Tollskrárnr.: |
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst: |
|
|
|
|
Beinlaust: |
|
|
|
0202.3009 |
-- Annað (hakkefni) |
29.06. - 30.09.17 |
0 |
270 |
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. september 2017.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. júní 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Eggert Ólafsson.
Birgitta Kristjánsdóttir.
|