1. gr.
Innleiðing.
Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 83/2014 frá 29. janúar 2014 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2014 frá 27. júní 2014 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 510.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 37. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Ákvæði reglugerðar þessarar koma til framkvæmda 18. febrúar 2016, að undanskildum ákvæðum e‑liðar í ORO.FTL.205 í viðauka III við reglugerð (ESB) nr. 83/2014, sem skulu koma til framkvæmda 17. febrúar 2017.
Innanríkisráðuneytinu, 29. janúar 2016.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
|