1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Ákvæði 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Bosníu og Herzegovinu nr. 765/2014 hljóði svo:
Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:
1. |
Ákvörðun ráðsins 2011/173/SSUÖ frá 21. mars 2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Bosníu og Herzegovinu, sbr. fylgiskjal 1. |
|
1.1 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/477 frá 31. mars 2016 um breytingu á ákvörðun 2011/173/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Bosníu og Hersegovinu, sbr. fylgiskjal 1.1. |
2. |
Sameiginleg afstaða (97/193/SSUÖ) frá 17. mars 1997, sem ráðið ákvað á grundvelli greinar J.2 í sáttmálanum um Evrópusambandið, um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn einstaklingum sem frömdu ofbeldisverk þegar atburðirnir í Mostar áttu sér stað hinn 10. febrúar 1997, sbr. fylgiskjal 2. |
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.
2. gr.
Fylgiskjöl.
Fylgiskjal 3 verður fylgiskjal 2.
3. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.
Lilja Alfreðsdóttir.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|