Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 914/2016

Nr. 914/2016 4. nóvember 2016

REGLUGERÐ
um ráðstöfun viðbótaraflaheimilda vegna veiða á íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2016/2017.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun viðbótaraflaheimilda vegna veiða á íslenskri sumargotssíld skv. ákvæði VIII til bráðabirgða í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

2. gr.

Úthluta skal allt að 758 lestum af íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2016/2017 til skipa allt að 200 brúttótonn að stærð sem ekki stunda veiðar með vörpu.

Heimilt er að úthluta á skip, sem hafa veiðileyfi með aflamarki, allt að 12 lestum í senn gegn greiðslu gjalds. Úthlutun hverju sinni er bundin því skilyrði að skip hafi veitt 80% af áður úthlut­uðum heimildum samkvæmt þessari grein. Aflaheimildir sem úthlutað er samkvæmt þessu ákvæði er óheimilt að framselja.

3. gr.

Fiskistofa annast úthlutun aflaheimilda á grundvelli umsókna og skal vikulega úthluta aflaheimildum á grundvelli umsókna sem borist hafa undanfarandi viku.

Ef umsóknir um aflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru skal Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur. Verð á aflaheimildum íslenskrar sumargotssíldar er 2,56 kr. fyrir hvert kg og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi gjald ekki verið greitt í síðasta lagi á öðrum virkum degi úthlutunarviku fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður.

Á heimasíðu Fiskistofu skal vikulega birta upplýsingar um magn sumargotssíldar sem til ráðstöfunar er.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi þann 7. nóvember 2016.

Reglugerð nr. 998/2015, um ráðstöfun aflaheimilda í íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2015/2016 er felld úr gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. nóvember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


B deild - Útgáfud.: 4. nóvember 2016