Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 727/2016

Nr. 727/2016 26. ágúst 2016

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 836/2013 um almenn útboð verðbréfa að verðmæti jafnvirðis 100.000 evra til 5.000.000 evra í íslenskum krónum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „100.000“ í e. lið 1. mgr. kemur: 2.500.000.
  2. Í stað „a–d-liðar“ í 2. mgr. kemur: a–e-liðar.
  3. Í stað orðanna „þessa töluliðar“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: 4. mgr.

2. gr.

Í stað „100.000“ í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 2.500.000.

3. gr.

Heiti viðauka I við reglugerðina verður: Lágmarkskröfur um upplýsingar sem koma eiga fram í lýsingu fyrir almenn útboð verðbréfa að verðmæti jafnvirðis 2.500.000 evra til 5.000.000 evra í íslenskum krónum.

4. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 1. mgr. 54. gr. laga um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 26. ágúst 2016.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Guðmundur Kári Kárason.


B deild - Útgáfud.: 29. ágúst 2016