1. gr.
Heiti reglnanna breytist og verður: Reglur um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði í læknadeild Háskóla Íslands.
2. gr.
Í stað orðsins „sjúkraþjálfun“í lok 1. málsl. 1. mgr. 1. gr. reglnanna kemur: sjúkraþjálfunarfræðum.
3. gr.
Í stað orðsins „sjúkraþjálfun“ í 2. málsl. 3. mgr. 2. gr. reglnanna kemur: sjúkraþjálfunarfræðum.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglnanna:
- Fyrirsögn greinarinnar verður: Námsleiðir í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræðum.
- Í stað orðsins „sjúkraþjálfun“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: sjúkraþjálfunarfræðum.
- Í stað orðsins „sjúkraþjálfun“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: sjúkraþjálfunarfræði.
5. gr.
Í stað orðsins „sjúkraþjálfun“ í 1. málsl. ákvæða til skýringar í reglunum kemur: sjúkraþjálfunarfræðum.
6. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 9. mgr. 102. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 11. nóvember 2016.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
|