Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 937/2015

Nr. 937/2015 19. október 2015

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1361/2014 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS-staðal 3 og 13, og alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 40.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sam­eiginlegu EES-nefndarinnar nr. 171/2015, frá 11. júní 2015, um breytingu á XXII. viðauka (Félaga­réttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn­ings­ins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1361/2014 frá 18. desember 2014 um breyt­ingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikn­ings­skila­staðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS-staðal 3 og 13, og alþjóðlegan reikn­ings­skila­staðal, IAS-staðal 40.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1361/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 63/2015, 15. október 2015, bls. 783.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og sam­stæðu­reikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. október 2015.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Harpa Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. október 2015