1. gr.
Í stað orðanna „deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda“ í fyrirsögn III. kafla, auk 1. mgr. 17. gr. og 1. mgr. 18. gr. reglnanna kemur: mála- og menningardeild.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands að fenginni tillögu stjórnar hugvísindasviðs, eru settar með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 9. desember 2016.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
|