1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015.
|
1.10 |
Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/2053 frá 16. nóvember 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.10. |
|
2.7 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/2044 frá 16. nóvember 2015 um framkvæmd 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.7. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 22. janúar 2016.
Gunnar Bragi Sveinsson.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|