1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Í stað 1.2 tölul. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Moldóvu nr. 291/2015 kemur nýr töluliður sem hljóðar svo:
|
1.2 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1925 frá 26. október 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/573/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn stjórninni á Transnistríusvæðinu í Lýðveldinu Moldóvu, fylgiskjal 1.2. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 22. janúar 2016.
Gunnar Bragi Sveinsson.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|