1. gr.
Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:
Stykkishólmur.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Stykkishólms með eftirfarandi viðauka/breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í Stykkishólmi og aðfluttan botnfiskafla til vinnslu í Stykkishólmi í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2014 til 31. ágúst 2015. |
|
b) |
Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er eða fluttur til vinnslu í Stykkishólmi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi byggðarlags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr. |
|
c) |
Ákvæði 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Réttindi til úthlutunar fylgja skipi, nema ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hefur endurnýjað fiskiskip sitt til að stunda fiskveiðar á fiskveiðiárinu 2015/2016, þá getur hann í umsókn sinni óskað eftir að við úthlutun aflamarks færist áunnin réttindi hins eldra skips til hins nýja. |
Vesturbyggð.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Bíldudals með eftirfarandi viðauka/breytingum:
Bíldudalur.
|
a) |
Ákvæði b-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2015. |
|
b) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega, af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags,miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1.-30. nóvember 2015. |
|
c) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2015 til 31. ágúst 2016. |
Súðavíkurhreppur.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta fyrir Súðavík með eftirfarandi viðauka/breytingum:
|
a) |
a-liður 1. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006 eða frístundaveiðileyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests. |
|
b) |
b-liður 1. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2015. |
|
c) |
1. málsl. c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2015. |
|
d) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 15% byggðakvóta Súðavíkur skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og eru með frístundaveiðileyfi. 80% byggðakvótans í Súðavík skal skipt jafnt á þá báta sem landað hafa 50% eða meira af sínum afla, fiskveiðiárið 2014/2015 í Súðavík og uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar. 5% skal skipt jafnt á aðra báta sem hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni og uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar. |
|
e) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla í Súðavík sem telja á til byggðakvóta, og einnig úthlutuðum byggðakvóta, til vinnslu í Súðavík á tímabilinu frá 1. september 2015 til 31. ágúst 2016. |
2. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. desember 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Baldur P. Erlingsson.
Hinrik Greipsson.
|