1. gr.
Með vísan til 24. og 25. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, með áorðnum breytingum, staðfestir mennta- og menningarmálaráðherra hér með eftirfarandi breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og greinasviða með aðalnámskrá grunnskóla:
- Í stað kafla 9.4. Viðmið um námsmat í grunnskóla og kafla 9.5. Tengsl við hæfniþrep í framhaldsskóla í aðalnámskrá grunnskóla, sbr. auglýsingu nr. 760/2011, koma nýir kaflar með sama heiti, sem birtir eru sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
- Í stað kafla 18.4. Matsviðmið í lykilhæfni við lok grunnskóla í greinasviðum aðalnámskrár grunnskóla, sbr. auglýsingu nr. 364/2013, kemur nýr kafli með sama heiti, sem birtur er á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytis.
2. gr.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 9. september 2015.
Illugi Gunnarsson.
Ásta Magnúsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|