Eignamat í árslok
Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2019, álagningarárið 2020, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:
|
kr. |
Mjólkurkýr |
122.000 |
Holdakýr og naut |
150.000 |
Kvígur, 1 1/2 árs og eldri |
125.000 |
Geldneyti |
75.000 |
Kálfar, yngri en 1/2 árs |
12.000 |
Ær og sauðir |
5.800 |
Hrútar |
15.000 |
Gemlingar |
8.000 |
Geitur |
8.000 |
Hross á 14. vetri og eldri |
18.000 |
Hross á 5. – 13. vetri |
36.000 |
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri |
170.000 |
Önnur nýtanleg reiðhross |
90.000 |
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri |
250.000 |
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri |
350.000 |
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri |
450.000 |
Tryppi á 2. – 4. vetri |
12.300 |
Folöld |
8.700 |
Hænsni, eldri en 6 mánaða |
925 |
Varphænsni 6 mánaða og yngri |
625 |
Kjúklingar |
245 |
Endur |
860 |
Gæsir |
1.720 |
Kalkúnar |
2.580 |
Gyltur |
39.000 |
Geltir |
58.000 |
Grísir |
11.000 |
Kanínur |
5.000 |
Minkar: |
Karldýr |
4.500 |
|
Kvendýr |
3.000 |
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri |
0 |
Reykjavík, 9. desember 2019.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
|