1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr.: I. liður fellur niður og núverandi II. liður verður I. liður greinarinnar. 1. málsliður síðustu málsgreinar 1. gr. orðast svo: Inntökunefnd, skipuð þremur kennurum deildarinnar, fjallar um umsóknir nemenda og annast val þeirra.
2. gr. Í stað tölunnar „150“ í lok 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. kemur: 100. 3. gr. Í stað tölunnar „10“ í lok 1. mgr. 3. gr. a. kemur: 13. 4. gr. Á eftir 3. gr. a. bætist við ný grein, 3. gr. b., sem ásamt fyrirsögn orðast svo: Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar stjórnmálafræðideildar. Fjöldi nýrra nemenda í MA-námi í blaða- og fréttamennsku takmarkast við töluna 21. Ef þeir sem sækja um að hefja námið, og uppfylla inntökuskilyrði, eru fleiri en unnt er að taka inn mun val nemenda byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum: Einkunnum í háskóla. Dreifingu nemendahópsins á greinar. Reynslu af fjölmiðlastörfum. Reynslu af öðrum sviðum. Viðtali.
Inntökunefnd í blaða- og fréttamennsku, skipuð þremur kennurum deildarinnar, fjallar um umsóknir nemenda og annast val þeirra. Telji inntökunefnd að umsækjandi uppfylli ekki inntökuskilyrði hafnar hún umsókn. Nánari ákvæði um inntökuskilyrði og inntöku nemenda er að finna í kennsluskrá og á vef félagsvísindasviðs. 5. gr. Í stað orðanna „95 nemendur að hámarki“ í 1. málsl. 3. mgr. 5. gr. kemur: 100 nemendur að hámarki. 6. gr. Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum fræðasviða og deilda háskólans, gilda frá og með háskólaárinu 2015-2016 og eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Háskóla Íslands, 5. desember 2014. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |