Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. reglugerðar um skoðun ökutækja nr. 8/2009, sbr. 67. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, hefur Samgöngustofa gefið út nýja skoðunarhandbók fyrir almenna skoðun ökutækja með útgáfunúmerinu 20 og dagsetninguna 15. maí 2017.
Handbókin, sem öðlast gildi 15. maí 2017, hefur verið birt á heimasíðu Samgöngustofu.
Samgöngustofu, 3. maí 2017.
|
Dagný Jónsdóttir, |
Kristófer Ágúst Kristófersson, |
|
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. |
deildarstjóri tæknimála ökutækja. |
|