1. gr.
Fyrir útgáfu starfsleyfa skal greiða:
120.000 kr. fyrir ökutækjaleigur með bifreiðar eingöngu eða bifreiðar og önnur skráningarskyld ökutæki. 80.000 kr. fyrir einkaleigur og ökutækjaleigu með annars konar skráningarskyld ökutæki en bifreiðar.
2. gr.
Gjaldskrá þessi, sem sett er samkvæmt 2. mgr. 3. gr. laga um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015, staðfestist hér með og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. september 2015.
F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Valgerður Rún Benediktsdóttir.
|