Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 744/2015

Nr. 744/2015 3. júlí 2015

REGLUGERÐ
um þvingunaraðgerðir varðandi Zimbabwe.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2011/101/SSUÖ frá 15. febrúar 2011 um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 1.
  1.1 Ákvörðun ráðsins 2012/97/SSUÖ frá 17. febrúar 2012 um breytingu á ákvörðun 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 2.
  1.2 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/124 frá 27. febrúar 2012 um framkvæmd ákvörðunar 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 3.
  1.3 Ákvörðun ráðsins 2013/89/SSUÖ frá 18. febrúar 2013 um breytingu á ákvörðun 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 4.
  1.4 Ákvörðun ráðsins 2013/160/SSUÖ frá 27. mars 2013 um breytingu á ákvörðun 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 5.
  1.5 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2013/469/SSUÖ frá 23. september 2013 um framkvæmd ákvörðunar 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 6.
  1.6 Ákvörðun ráðsins 2014/98/SSUÖ frá 17. febrúar 2014 um breytingu á ákvörðun 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 7.
  1.7 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/277 frá 19. febrúar 2015 um breytingu á ákvörðun 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 8.
2. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 frá 19. febrúar 2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 9.
  2.1 Túlkunaryfirlýsing ráðsins: Stjtíð. EB L 57, 25.2.2004, bls. 1., fylgiskjal 10.
  2.2 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 77/2009 frá 26. janúar 2009 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 11.
  2.3 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 173/2010 frá 25. febrúar 2010 um breyt­ingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 12.
  2.4 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 174/2011 frá 23. febrúar 2011 um breyt­ingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 13.
  2.5 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 151/2012 frá 21. febrúar 2012 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 14.
  2.6 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 145/2013 frá 19. febrúar 2013 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 15.
  2.7 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 915/2013 frá 23. september 2013 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 16.
  2.8 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 153/2014 frá 17. febrúar 2014 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 298/2013, fylgiskjal 17.
  2.9 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/275 frá 19. febrúar 2015 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 18.
  2.10 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/612 frá 20. apríl 2015 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 19.

Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

  a) ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins („EB“, „ESB“, „Bandalagsins“ eða „sameiginlega markaðarins“) eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
  b) ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
  c) tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samn­ingsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
  d) tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
  e) tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
  f) vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.

4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Simbabve nr. 903/2009.

Utanríkisráðuneytinu, 3. júlí 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 26. ágúst 2015