1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Á eftir 33. tölul. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum, komi eftirfarandi töluliðir sem hljóði svo:
|
34) |
Ákvörðun ráðsins 2014/933/SSUÖ frá 18. desember 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/386/SSUÖ um þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevastopol. |
|
35) |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/959 frá 19. júní 2015 um breytingu á ákvörðun 2014/386/SSUÖ um þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevastopol. |
|
36) |
Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1351/2014 frá 18. desember 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 692/2014 um þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevastopol. |
|
37) |
Ákvörðun ráðsins 2014/801/SSUÖ frá 17. nóvember 2014 um breytingu á ákvörðun 2015/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
38) |
Ákvörðun ráðsins 2014/855/SSUÖ frá 28. nóvember 2014 um breytingu á ákvörðun 2015/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
39) |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/241 frá 9. febrúar 2015 um breytingu á ákvörðun 2015/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
40) |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/432 frá 13. mars 2015 um breytingu á ákvörðun 2015/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
41) |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 1225/2014 frá 17. nóvember 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
42) |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 1270/2014 frá 28. nóvember 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
43) |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/240 frá 9. febrúar 2015 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
44) |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/427 frá 13. mars 2015 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
45) |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/143 frá 29. janúar 2015 um breytingu á ákvörðun 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu. |
|
46) |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/364 frá 5. mars 2015 um breytingu á ákvörðun 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu. |
|
47) |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/876 frá 5. júní 2015 um breytingu á ákvörðun 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu. |
|
48) |
Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 2015/138 frá 29. janúar 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu. |
|
49) |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/357 frá 5. mars 2015 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu. |
|
50) |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/869 frá 5. júní 2015 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu. |
|
51) |
Ákvörðun ráðsins 2014/872/SSUÖ frá 4. desember 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússa sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu og á ákvörðun 2014/659/SSUÖ um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ. |
|
52) |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/971 frá 22. júní 2015 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússa sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu. |
|
53) |
Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1290/2014 frá 4. desember 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússa sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu og á reglugerð (ESB) nr. 960/2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014. |
Gerðir sem vísað er til í 34.-53. tölul. eru birtar sem fylgiskjöl 1-20 við reglugerð þessa.
Leiðréttingar á eftirfarandi gerðum eru birtar sem fylgiskjöl 21-24 við reglugerð þessa:
|
- |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 477/2014. |
|
- |
Ákvörðun ráðsins 2014/265/SSUÖ. |
|
- |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 810/2014. |
|
- |
Ákvörðun ráðsins 2014/499/SSUÖ. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 9. júlí 2015.
Gunnar Bragi Sveinsson.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|