1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 77. gr.:
- 2. mgr. orðast svo:
Fjárveiting til sjóðsins er ákveðin árlega af háskólaráði.
- 3. mgr. orðast svo:
Stjórn sjóðsins úthlutar sérhæfðu tækjakaupafé á grundvelli umsókna og forgangsröðunar fræðasviða.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 7. september 2015.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
|