1. gr. 2. mgr. 5. gr. reglnanna orðist svo: Undanþágur frá tilkynningarskyldu skv. 1. mgr. gilda ekki um rafræna vinnslu: - Persónuupplýsinga um hegðun og mat á árangri einstaklinga, s.s. um einkunnir nemenda og frammistöðu starfsmanna.
- Persónuupplýsinga sem fram fer í þeim tilgangi að fella einstaklinga inn í tiltekið persónusnið, skv. 23. gr. laga nr. 77/2000.
- Persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun sem fram fer í verkstjórnartilgangi eða til að fylgjast með mætingum og vinnuskilum.
- Sem felur í sér flutning ódulkóðaðra persónuupplýsinga úr landi.
- Sem felur í sér kerfisbundna hljóðritun símtala.
2. gr. Breyting þessi tekur þegar gildi. Persónuvernd, 19. september 2006. Páll Hreinsson formaður. Valur Árnason. | Haraldur Briem. | | | Ólafur Garðarsson. | Svana H. Björnsdóttir. |
|