Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Þann 9. nóvember 2005 er hefðbundinni prentun Stjórnartíðinda hætt og réttaráhrif auglýsinga verða bundin við hina rafrænu útgáfu Stjórnartíðinda á netinu, sbr. lög nr. 15/2005.

Frá sama tíma breytist móttaka auglýsinga til birtingar.

Nýju ferli er lýst á eftirfarandi hátt:

  1. Auglýsanda er úthlutað aðgangsorði að eigin svæði á vef Stjórnartíðinda. Hann færir sjálfur inn auglýsingar og ákveður birtingardag.
  2. Starfsfólk Stjórnartíðinda samþykkir auglýsinguna eða hafnar henni.
  3. Vinnsla málsins heldur áfram og kostnaður vegnar birtingar sendur til Fjársýslu ríkisins sem innheimtir hann eftir næstu mánaðamót.
  4. Auglýsing birtist á vef Stjórnartíðinda og gerir það réttaráhrif hennar virk. Auglýsingu verður ekki breytt eftir birtingu.

Stjórnartíðindi skilgreina fyrir hvern notanda í hvaða deild honum er heimilt að birta.

Gert er ráð fyrir að Stjórnartíðindi hafi að lágmarki 10 virka daga til að birta mál. Aukakostnaður fellur á mál sem beðið er um að birtist með skemmri fyrirvara.

Til að öðlast aðgang að auglýsendavef Stjórnartíðinda þarf umsækjandi að ná í umsóknina hér að neðan, prenta og fylla út og koma til skrifstofu Stjórnartíðinda, innanríkisráðuneyti, Skuggasundi, 150 Reykjavík. Við móttöku og staðfestingu verður ábyrgðarbréf með notendanafni og lykilorði sent umsækjanda.

Umsókn um aðgangsauðkenni auglýsanda í Stjórnartíðindum.