Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 882/2007

Nr. 882/2007 13. september 2007
HAFNARREGLUGERÐ
fyrir Grundarfjarðarhöfn.

1. gr.

Stærð og takmörk hafnarinnar.

Takmörk á sjó: Grundarfjarðarhöfn takmarkast af línu, sem hugsast dregin úr Spjarar­snoppu, austan fjarðarins, beint í Flangasker og þaðan aftur í beina stefnu í svokallaðan Hamar, vestan við bæinn Krossnes á vesturströnd fjarðarins. Að öðru leyti takmarkast höfnin af strandlínu milli þessara sömu staða.

Takmörk á landi: Hafnarsvæði er það svæði sem skilgreint er sem slíkt í aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar hverju sinni.

Helstu hafnarsvæði eru:

Norðurgarður.
Suðurgarður.
Miðgarður.
Smábátabryggja (flotbryggja).

Landsvæði hafnarinnar skiptast í:

- Hafnarbakka og bryggjur.
- Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.
- Götur.
- Lóðir, iðnaðar- og baksvæði.

2. gr.

Stjórn hafnarinnar.

Grundarfjarðarbær er eigandi hafnarinnar. Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar fer með yfirstjórn hafnamála, en framkvæmdastjórn er falin hafnarstjórn og hafnarstjóra.

Hafnarstjórn er kjörin af bæjarstjórn skv. samþykkt um stjórn og fundarsköp Grundar­fjarðar­bæjar. Hafnarstjórn skipa 3 fulltrúar og 3 til vara og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn ákveður hver hinna kjörnu fulltrúa í hafnarstjórn skuli vera formaður og hver varaformaður. Hafnarstjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Auk hinna kjörnu fulltrúa situr hafnarstjóri fundi hafnarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, sömuleiðis hafnarvörður eða sá sem sér um daglegan rekstur.

3. gr.

Starfs- og valdsvið hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnarinnar. Leita skal staðfestingar bæjarstjórnar á fjárhagsáætlunum hafnarsjóðs svo og lántökum hafnarsjóðs til lengri tíma en yfirstandandi fjárhagsárs.

Hafnarstjórn hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ.m.t. leigu á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar.

Hafnarstjórn veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæðis fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilega hafnar­starfsemi.

Hafnarstjórn gerir tillögur til bæjarstjórnar um skipulagsmál á hafnarsvæðinu, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Hafnarstjórn leggur til við umhverfisnefnd hverjum verði úthlutað lóðum á hafnarsvæðinu. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn.

4. gr.

Starfs- og valdsvið hafnarstjóra.

Hafnarstjóri er ráðinn af hafnarstjórn og fer hann með daglega stjórn hafnarinnar í umboði hafnarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr mál sem leggja á fyrir hafnarstjórn, veitir viðtöku erindum til hennar, boðar fundi í hafnarstjórn í samráði við formann hafnar­stjórnar og sér um framkvæmd samþykkta hafnarstjórnar. Hann veitir hafnar­stjórn og bæjarstjórn upplýsingar um málefni hafnarinnar og fer að öðru leyti með fyrir­svar fyrir höfnina gagnvart utanaðkomandi aðilum. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs. Hann er yfirmaður allra starfsmanna hafnar­innar og sér um ráðningu þeirra og uppsögn í samráði við hafnarstjórn.

Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnareglugerða, auk reglugerðar þessarar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarstjórnar og bæjar­stjórnar.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á öllu hafnarsvæðinu hvort sem er á sjó eða landi. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem hann felur störf við eftirlit og aðgæslu.

5. gr.

Um aðra starfsmenn hafnarinnar.

Hafnarstarfsmenn, sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar. Skipunum starfsmanna ber að hlýða þegar í stað.

6. gr.

Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

Skipum sem koma í Grundarfjarðarhöfn er ekki skylt að taka hafnsögumann. Hafnsaga er þó í boði fyrir þá sem þess óska og skal skipstjóri láta starfsmann hafnar vita með minnst þriggja klukkustunda fyrirvara að hann óski eftir þeirri þjónustu. Er hafnsögu­manni skylt að fara til móts við skipið allt að 3 sjómílum undan Grundarfjarðar­höfn, ef skipstjóri æskir þess.

Hafnsögumaður vísar skipinu leið til hafnar og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra fyrr en skipið er komið í viðlegu. Heimilt er hafnsögumanni meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu að banna hverjum þeim sem ekki á lögmætt erindi að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð ber skipinu að sjá honum fyrir fæði. Grundarfjarðarhöfn hefur ekki yfir dráttar- eða þjónustubáti að ráða.

7. gr.

Löggæsla á hafnarsvæði.

Lögreglan í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu hefur á hendi almenna löggæslu á hafnar­svæðinu.

Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga á hafnarsvæðinu er bannað að dvelja þar ef þeir með því tálma lestun, losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggju, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnarsvæðinu. Fólk sem fer um hafnarsvæðið er þar ávallt á eigin áhættu og ábyrgð. Sund er bannað á hafnar­svæðinu án leyfis.

Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni, nema í sérstökum tilvikum með leyfi hafnarstjóra. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.

Hafnarstjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er í höfninni en hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.

8. gr.

Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnarstjóra, tálmar greiðri notkun hafnarinnar, skal það fært burtu svo fljótt sem auðið er af eiganda, umráðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því má hafnarstjóri láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað, að vali og eftir mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi skip, til lúkningar á kostnaði, á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en hafnarinnar, er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnarstjóri fyrirskipa eiganda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað, eftir vali og mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hag­kvæmastur þykir, til lúkningar á kostnaði, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns.

9. gr.

Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina eða ytri höfn hennar.

Bannaður er hvers konar hvalskurður í eða við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt, inn í höfnina, hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfninni nema leyfi hafnarstjóra komi til.

Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíu, lýsi, olíusora eða öðru sem valdið getur mengun.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati hafnarstarfsmanna, gert forsvaranlegar ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.

10. gr.

Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Allir þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfninni, skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnarinnar með beiðni þar að lútandi.

Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum hafnarinnar um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af vanskilum sem koma fram í 1. málslið greinarinnar.

11. gr.

Hverjum gefa skal fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipanir og er það jafngilt sem skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

12. gr.

Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra sem leið eiga um höfn og hafnarsvæði, vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja dómkvaddra matsmanna, sem dómkvaddir eru af héraðsdómi Vesturlands. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, innan mánaðar frá því matsgerð samkvæmt 2. mgr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostnaður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostnaður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr. skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

13. gr.

Kæruheimild.

Notendum Grundarfjarðarhafnar er heimilt að skjóta ákvörðunum hafnarstjórnar samkvæmt reglugerð þessari, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Siglingastofnunar Íslands. Ákvörðunum Siglingastofnunar má skjóta til samgönguráðherra. Um máls­meðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

14. gr.

Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

15. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og 17. gr. laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Grundarfjarðarhöfn nr. 500 frá 7. maí 2007.

Samgönguráðuneytinu, 13. september 2007.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 1. október 2007