1. gr. Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi: Sveitarfélagið Skagafjörður. | a) | Nýtt ákvæði í 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Hámarksúthlutun til fiskiskipa yfir 50 brúttótonnum, af því aflamarki sem fallið hefur innan viðkomandi byggðarlags, verður 5 þorskígildistonn. | | b) | Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa í því byggðarlagi sem byggðakvótinn tilheyrir, til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, að lágmarki 88% af magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu. |
2. gr. Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. maí 2012. F. h. r. Arndís Steinþórsdóttir. Hinrik Greipsson. |