1. gr. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að sameina eftirtaldar heilbrigðisstofnanir og tekur sameiningin gildi 1. október 2014:
| a. | Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sameinast eftirtaldar stofnanir: | | | Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði. | | b. | Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Norðurlands sameinast eftirtaldar stofnanir: | | | Heilbrigðisstofnunin Blönduósi. Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki. Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð. Heilsugæslustöðin Dalvík. Heilsugæslustöðin á Akureyri. Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. | | c. | Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Suðurlands sameinast eftirtaldar stofnanir: | | | Heilbrigðisstofnun Suðausturlands. Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum. Heilbrigðisstofnun Suðurlands. |
2. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 9. júlí 2014. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Sveinn Magnússon. |