1. gr. 1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi: Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 211/2013 frá 11. mars 2013 um kröfur varðandi útgáfu vottorða vegna innflutnings til Sambandsins á spírum og fræjum sem ætluð eru til framleiðslu á spírum. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 704/2014 frá 25. júní 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 211/2013 um kröfur varðandi útgáfu vottorða vegna innflutnings til Sambandsins á spírum og fræjum sem eru ætluð til framleiðslu á spírum.
2. gr. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 704/2014 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa. 3. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. apríl 2015. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Ólafur Friðriksson. |
Eggert Ólafsson. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |