Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 469/2013

Nr. 469/2013 21. maí 2013
REGLUGERÐ
um bann við hvalveiðum á tilteknum svæðum.

1. gr.

Frá gildistöku reglugerðar þessarar eru allar hvalveiðar bannaðar á eftirgreindum svæðum:

A. Á Faxaflóa innan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 64°04,9′ N - 22°41,4′ V (Garðskagavita).
  2. 64°46,6′ N - 22°36,3′ V (Skógarnes).

B. Á Eyjafirði og Skjálfandaflóa innan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 66°11,6′ N - 18°49,3′ V (Siglunesviti).
  2. 66°17,8′ N - 17°06,8′ V (Lágey).
  3. 66°12,4′ N - 17°08,7′ V (Tjörnesviti).

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 10. gr. laga nr. 26, 3. maí 1949, um hvalveiðar. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 26 3. maí 1949 um hvalveiðar, til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott reglugerð um bann við hvalveiðum á tilteknum svæðum nr. 414/2009.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. maí 2013.

Steingrímur J. Sigfússon.

Kristján Skarphéðinsson.

B deild - Útgáfud.: 21. maí 2013