Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 15. ágúst 2012 samþykkt tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi á lóðinni Skeljatangi 12, sem fengið hafði meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt 1. júní 2012 og bárust ekki athugasemdir í grenndarkynningu. Breytingin, sem felst í því að byggingarreitur er stækkaður um 4 m til norðurs, hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 14. janúar 2013, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |