1. gr. Í stað „480.000 kr.“ í 2. málsl. b-liðar 1. mgr. 3. gr. kemur: 1.315.200 kr. 2. gr. Í stað „70.000 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. kemur: 72.520 kr. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2014. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1218/2012, um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006, um stofnanaþjónustu fyrir aldraða. Velferðarráðuneytinu, 20. desember 2013. | Eygló Harðardóttir | Kristján Þór Júlíusson | | félags- og húsnæðismálaráðherra. | heilbrigðisráðherra. |
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |