1. gr. Vegna byggingarleyfa skal greiða eftirfarandi gjöld: Gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaúttektar. Einnig eru gjöld vegna grenndarkynninga og yfirferðar séruppdrátta. Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama húsnæði með íbúðum: | | kr. | | Gólfflötur allt að 500 fermetrar | 120.000 | | Gólfflötur 500 – 1.000 fermetrar | 220.000 | | Gólfflötur 1.001 – 2.000 fermetrar | 320.000 | | Gólfflötur 2.001 – 5.000 fermetrar | 490.000 | | Gólfflötur strærri en 5.000 fermetrar | 650.000 | | Viðbyggingar 10-100 fermetrar | 70.000 | | Breytingar án stækkunar | 100.000 |
Byggingarleyfisgjöld af viðbyggingum sem eru stærri en 100 fermetrar skulu vera þau sömu og byggingarleyfisgjöld af því húsnæði sem byggt er við. Vegna aðkeyptrar yfirferðar séruppdrátta verður innheimt sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni. 2. gr. Afgreiðslu- og þjónustugjöld. Fyrir neðangreinda þjónustu/afgreiðslu ber að greiða eftirtalin gjöld: | | kr. | | Staðfestingargjald vegna lóðaúthlutunar | 100.000 | | Hver endurskoðun aðaluppdrátta | 15.000 | | Endurnýjun leyfis án breytinga | 10.000 | | Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt | 20.000 | | Úttekt og vottorð vegna vín- og veitingaleyfa | 25.000 | | Stöðuleyfi (eitt ár í senn) | 25.000 | | Endurútmæling | 50.000 | | Eignaskiptayfirlýsingar, hver umfjöllun pr. eignarhluta | 6.000 | | Framkvæmdaleyfi | 30.000 | | Fyrir breytingu á lóðarsamningi | 50.000 | | Úttekt vegna leiguhúsnæðis | 30.000 | | Umsýslugjald vegna grenndarkynninga | 120.000 |
Meiriháttar breytingar á samþykktu deiliskipulagi: Viðkomandi hagsmunaaðili sjái um breytingarnar á sinn kostnað, þó að undanskildum auglýsingakostnaði. 3. gr. Stjórn Keflavíkurflugvallar ohf. er heimilt er að innheimta önnur þjónustugjöld en mælt er fyrir um í gjaldskrá þessari, sbr. 53. gr. laga nr. 73/1997, enda nemi þau ekki hærri fjárhæð en sem nemur kostnaði við að veita þjónustuna. 4. gr. Breytingar á fjárhæð gjalda. Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í janúar 2009 og breytast 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni. Byggingarvísitala í janúar 2009 er 489,6 stig. Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 53. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og öðlast gildi við birtingu þessarar auglýsingar. Samþykkt í stjórn Keflavíkurflugvallar ohf. 12. maí 2009. Keflavíkurflugvelli, 9. febrúar 2010. Björn Óli Hauksson forstjóri. |