Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, hefur ráðherra þann 8. maí 2009 staðfest breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024 frá 8. júlí 2003. Breytingin felst í því að suðurhluti íbúðarsvæðis í Leirvogstungu stækkar til austurs og reiðleið færist vestur fyrir tengiveg vestan hverfisins. Þá minnkar opið óbyggt svæði við breytinguna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar. Breytingin öðlast þegar gildi. Umhverfisráðuneytinu, 8. maí 2009. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Logi Kjartansson. |