1. gr. Eftirfarandi breyting verður á fjárhæðum vegna dagpeninga innanlands í kafla 3.2 Frádráttur á móti dagpeningum: | kr. | Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring | 18.700 | Fyrir gistingu í einn sólarhring | 10.400 | Fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag | 8.300 | Fyrir fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag | 4.150 |
2. gr. Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast gildi og koma til framkvæmda frá og með 1. nóvember 2009. Fjármálaráðuneytinu, 30. október 2009. F. h. r. Guðmundur Árnason. Ingibjörg Helga Helgadóttir. |