1. gr. Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum á nautakjöti samkvæmt viðauka IV A og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. 2. gr. Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll: | Vara | Tímabil | Verðtollur | Magntollur | | | | % | kr./kg | Tollskrárnr.: | Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst : | | | | Sneitt á annan hátt með beini: | | | | 0202.2001 | Hryggir og hryggsneiðar | 01.10.14 - 30.11.14 | 0 | 316 | 0202.2002 | Læri og lærisneiðar | 01.10.14 - 30.11.14 | 0 | 225 | | Beinlaust: | | | | 0202.3002 | Lundir | 01.10.14 - 30.11.14 | 0 | 658 | 0202.3003 | Hryggvöðvar | 01.10.14 - 30.11.14 | 0 | 489 | 0202.3004 | Vöðvar af læri | 01.10.14 - 30.11.14 | 0 | 456 | 0202.3009 | Annað (hakkefni) | 01.10.14 - 31.12.14 | 0 | 270 |
3. gr. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins. 4. gr. Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála. 5. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. desember 2014. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. september 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Ólafur Friðriksson. |
Ása Þórhildur Þórðardóttir. |