Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 12. júní 2013 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkt tillögur að breytingum á eftirtöldum deiliskipulagsáætlunum: Á deiliskipulagi íbúðarsvæðis við Klapparhlíð, samþykktu 10. nóvember 2000, síðast breyttu 31. mars 2004. Breytingin felst í því að grenndarvöllur verður tekinn tímabundið undir allt að þrjár færanlegar kennslustofur og tilheyrandi tengibyggingar. Skilgreindur er byggingarreitur og settir skilmálar um hæð og umfang bygginganna. Á deiliskipulagi þjónustusvæðis við Lækjarhlíð, samþykktu 27. apríl 2005, síðast breyttu 11. júlí 2012. Breyting felst í því að bætt er við byggingarreit fyrir eina færanlega kennslustofu til viðbótar á lóð Lágafellsskóla og settir skilmálar um hæð og umfang byggingarinnar. Á deiliskipulagi Hjallahlíðar (samþykktu 5. mars 1997), og deiliskipulagi Hulduhlíðar (síðast breyttu 2. september 1998). Breytingar varða báðar þessar deiliskipulagsáætlanir og felast í því að skilgreindur er byggingarreitur fyrir allt að þrjár færanlegar kennslustofur með tengibyggingum, sem settar yrðu tímabundið á leikvöll við Hjallahlíð. Á tillöguuppdrætti eru skilmálar um hæð og umfang bygginganna. Ofangreindar breytingar á deiliskipulagsáætlunum hafa hlotið málsmeðferð samkv. 1. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010 og öðlast þær þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 9. ágúst 2013, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |