1. gr. Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 78. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup skulu vera sem hér segir: Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér: Vörusamningar 21.540.485 kr. Þjónustusamningar 21.540.485 kr. Verksamningar 828.480.200 kr. Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér: Vörusamningar 33.139.208 kr. Þjónustusamningar 33.139.208 kr. Verksamningar 828.480.200 kr. 2. gr. Viðmiðunarfjárhæðir vegna kostnaðarþátttöku opinberra aðila sbr. 13. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup skulu vera 828.480.200 kr. vegna verksamninga og 33.139.208 kr. vegna þjónustusamninga. 3. gr. Viðmiðunarfjárhæð vegna kynningarauglýsingar á Evrópska efnahagssvæðinu vegna áætlaðra kaupa á einu ári er 63.870.000 kr. fyrir vöru- og þjónustusamninga og 828.480.200 kr. fyrir verksamninga, sbr. 35. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB er birt sem fylgiskjal við lög nr. 84/2007 um opinber innkaup. 4. gr. Viðmiðunarfjárhæð vegna gerðar sérleyfissamninga um verk er 828.480.200 kr., sbr. 56. og 63. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB. 5. gr. Viðmiðunarfjárhæð vegna hönnunarsamkeppni, sbr. 67. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB, skulu vera sem hér segir: Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér: 21.540.485 kr. Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér: 33.139.208 kr. 6. gr. Viðmiðunarfjárhæðir skv. 1.-5. gr. reglugerðar þessarar gilda einnig um útboðsskyldu vegna innkaupa samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup sem Ísland er aðili að. 7. gr. Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1251/2011 frá 30. nóvember 2011 um breytingu á tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2004/17/EB, 2004/18/EB og 2009/81/EB að því er varðar beitingu viðmiðunarfjárhæða við útboð og gerð samninga, sem vísað er til í XVI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2012, þann 31. mars 2012. Reglugerðin er sett með heimild í 78. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup og tekur þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 229/2010 um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup. Fjármálaráðuneytinu, 29. júní 2012. F. h. r. Þórhallur Arason. Guðrún Ögmundsdóttir. |